|
|
|
Endurhæfing
|
|
|
|
|
|
|
|
Smiðjur og námskeið í EKRON - Græn nytjahönnun – skapandi umhverfisuppeldi og útskurður
Ólafur Oddsson, uppeldisráðgjafi og skógarbóndi Hann bjó til verkefnið ”Lesið í skóginn- tálgað í tré” fyrir 10 árum síðan og hefur haldið yfir 100 námskeið fyrir ólíka hópa, kennaranema, kennara, skógarbændur, handverksfólk, listafólk, börn og foreldra, ýmsa starfsmannahópa, óvirka atvinnulausa fíkla/ungmenni, eldri borgara o.fl. (2000 þátttakendur).
- Myndmennt - listasaga
Margrét Zophóníasdóttir Menntun Danmarks Lærerhøjskole, 2000-2001 Danmarks Designskole, 1977-1981 Myndlista og Handíðaskóli Íslands, 1975-1977 Myndlistaskóli Reykjavíkur, 1974-1975
Kennsla Myndlistahópur Flugleiða, 2002-2008 Korpuskóli, Danska og Samfélagsfræði, 2006-2007 Landakotsskóli, Danska, 2005-2006 Myndlistaskóli Kópavogs, 2002-2006 Myndlistaskóli Reykjavíkur, 2002-2006 Listaháskóli Íslands, 2005 Billedskolen for børn (Tvillingehallen), 1997-2002 Tegning og Designskolen Indiakaj, 2000-2001 Workshop fyrir endurvinnslu á hlutum, 2001 Workshop fyrir Nationalmuseet, 2000 Workshop fyrir Havnedage (Hafnardagar í Kaupmannahöfn), 2000 Workshop UNICEF, 1999 Öll Workshop verkefnin voru á vegum Billedskolen í Danmörku. Myndlistaskóli Reykjavíkur, 1982-1984 Myndlistaskóli Reykjavíkur, 1990-1997 Myndlista- og Handíðaskóli Íslands, 1982-1985 Myndlista- og Handíðaskóli Íslands, 1987-1997
Verk í opinberri eigu Háskóli Íslands, 1985
- Kertagerð
Inga Guðnadóttir Eva Ósk Jónsdóttir
- Leirkeragerð – glerlistagerð – skartgripasmíði - kortagerð
Inga Guðnadóttir
- Saumar og hönnun
Eva Ósk Jónsdóttir.
- Tölvunámskeið
Helgi H. Helgason, verkfræðingur Gunnlaugur S. Gunnarsson, rafeindavirki/kerfisstjóri
- Aftur í nám og starf – ferlisskrá – færnismappa. Sálfstyrking og sjálfsefling.
Unnið er með samskipti út frá dagsplani og þörfum vímuefnaneytenda- ferlisskrá – færnismappa - sjálfstyrking Félagsráðgjafi sér um þessi námskeið með aðstoð vímuefnaráðgjafa.
- Andlegt líf
Samkirkjulegt efni, þar er lögð er áhersla á að skapa umræður um ýmis málefni eins og t.d. siðferði o.fl.
- Fjármálanámskeið
Fjármálaráðgjafar eru Garðar Björgvinsson og Sigurður Erlingsson. Fjármálanámskeiðin sem haldin eru í þessu úrræði hafa hlotið mjög mikla viðurkenningu. En þessi námskeið hafa verið haldin allt frá 1989. Mikið er unnið með tilfinningar, sjálfsvirðingu og sjálfstraust. Unnið er með einstaklingana í hópum og megin hóparnir eru tveir. Hvað varðar hópinn sem ekki hefur tekið ábyrgð á greiðslu skuldbindinga þá hefur verið smíðað endurhæfingar úrræði þar sem fólk er þjálfað daglega í vinnuhópum viðtölum og verkefnatímum í því að taka þessa ábyrgð. Það gerir æfingar varðandi meðferð á neyslufé, varðandi ábyrgð á eigin tekjuöflun, ábyrgð þegar stofnað er til skuldbindinga og fjármálalegt læsi þjálfað. Fólki er komið á markvissan hátt yfir þá tilfinningaþröskulda sem þarf svo það þori að taka þessa ábyrgð. Hinn hópurinn hefur tekið ábyrgðina en er í þeirri tilfinningastöðu að það þorir ekki að hafa samskipti út frá sannleikanum um sín fjármál. Það er samskonar úrræði fyrir þennan hóp en með áherslum sem eiga betur við. Sjá, www.ltv.is og www.velgengni.is
- Traust
Marteinn Steinar Jónsson, sálfræðingur og Gregory Aikins, prestur og kennari Námskeiðið er grundvallað á þeirri staðreynd að heilindi og traust eru hornsteinar velgengi og farsældar í mannlegum samskiptum, hvort sem um sé að ræða vinasambönd, fjölskyldur, viðskipti eða stjórnarfar. Án trausts eru samskipti okkar dæmd til að mistakast, eins og dæmin í kringum okkur sanna. Námskeiðið um traust er þjálfunarnámskeið sem leggur megináhersla á eftirfarandi atriði: - Heilindi - hvernig getum við áunnið okkur traust annarra?
- Leiðir til að byggja upp og viðhalda trausti í samskiptum.
- Mikilvægi þess að við skiljum aðra betur - að geta séð heiminn út frá sjónarhorni annarra.
- Leiðir til að efla samskiptahæfni. Forsendur gagnkvæms skilnings felast í listinni að kunna að hlusta og tala.Námskeiðið byggir á fyrirlestrum og verklegum æfingum ásamt handleiðslu og endurgjöf.
- Skyndihjálp
Starfsmenn Rauða kross Íslands
- ADHD
Unnið er með bókina Hámarksárangur í NÁMI MEÐ ADHD eftir Sigrúnu Harðardóttur og Tinnu Halldórsdóttur. Þjálfuð eru úrræði, námsaðferðir, seiglu (resilience) sem miðar að því að þátttakendur með ADHD nái að nota hæfileika sína. Sigrún Harðardóttir, félagsráðgjafi MSW, náms- og starfsráðgjafi, kennari
- Líkamsrækt – slökun
Farið er í mikilvægi þjálfunar og hreyfingar. Kennt er undirstöðuatriði líkamsræktar og heilbrigðs mataræði. Guðbjörn Gunnarsson, einkaþjálfari
- Instrumental Enrichment
(Efling vitsmuna, kennsluaðferð þróuð af Dr. Reuven Feuerstein) – regluleg kennsla Elizabeth Aikins, hjúkrunarfræðingur, master í kennslufræð (sérkennsla), Certified Cognitive Development Specialist (full réttindi).
- Fjölbrautarskólinn við Ármúla
Kennt verður í fjarnámi í EKRON og haustið 2009 hófst samstarf við Fjölbrautarskólann við Ármúla.
Fyrirlestrar og kennsla sem reglulega eru fluttir af ráðgjöfum EKRON - ADHD
- Ákveðni og áræði
- Batalíkan Gorski og Miller
- Dags- og vikuplan
- Fíkn sem ferli – Graig Nakken
- Fjölskyldan
- Fordómar
- Frestunarárátta
- Föll og fallþróun (Gorski)
- Hvernig á að segja nei
- Lög, reglur, skyldur og réttindi í íslensku þjóðfélagi
- Mannlegur eða fullkominn
- Markmið
- Meðvirkni
- Ofbeldi , hvað er andlegt, líkamlegt, kynferðislegt og fjárhagslegt ofbeldi.
- Streita og síðhvörf
- Úr álögum og erfðarvenjum
- Þarfapýramídi Maslows
- Þroskahlutverk Eric Berne
- Þroski og auðmýkt
|
|
|